Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Ari er tveggja barna faðir og nú stoltur afi tveggja barnabarna. Áhugi hans á hraða við krefjandi aðstæður skilaði honum snemma á fullorðinsárum nokkrum titlum í rallakstri hér á landi.Hann hefur meðal annars starfað við bílasölu, kennslu, blaðamennsku og ferðaþjónustu og hafa bílar og samskipti við fólk gjarnan verið rauði þráðurinn í störfum hans.Eftir nær fjóra áratugi við að ferðast með farþega um kraftmikið íslenskt landslag í alls kyns ökutækjum, þar á meðal bílum sem hann hafði sjálfur hannað, varð honum sífellt ljósari þörfin fyrir ökutæki sem henta betur til aksturs utan malbikaðra vega. Það varð til þess að hann stofnaði vörumerkið Ísar og hóf nýjan starfsferil á sviði bílahönnunar.
„Aðeins 0,1 af yfirborði jarðar er malbikað. Við þjónum restinni.“Þessi setning minnir okkur hjá Ísar stöðugt á markmið okkar: að gera akstur og flutninga á landi betri, hraðari, ódýrari og sjálfbærari – milli póla.Við byggjum á 40 ára íslenskri þekkingu á því hvernig komast má áfram þegar aðstæður eru erfiðar. Hvernig hægt er að skutla börnunum í skólann, bjarga fólki úr snjóþungum fjöllum og aka yfir jökla – allt á sama degi og á einum og sama vegbílnum.Ísar hefur tekið þessa íslensku sérþekkingu skrefinu lengra og þróað lausnir sem gera fólki annars staðar í heiminum kleift að komast áfram í sandi, leðju, snjó og öðrum krefjandi aðstæðum.Í þessari stuttu vinnustofu kynnum við hvernig við nálgumst þetta í dag og hvaða tækni liggur að baki einstakri getu Ísar-bílanna, rekstrarhagkvæmni þeirra og sjálfbærni.