Samhliða Björgun fer fram vörusýning, þar sem fjölbreytt fyrirtæki fá tækifæri til að kynna vörur og þjónustu sem tengjast leit, björgun og slysavörnum. Á vörusýningunni verða allt að 60 sýningarpláss fyrir fyrirtæki sem vilja kynna vörur, þjónustu, matvöru eða annað sem nýtist viðbragðsaðilum á borð við björgunarsveitir, lögreglu, slökkvilið, heilbrigðisstarfsfólk, sérsveit og landhelgisgæslu.
Sýnendum býðst jafnframt að halda 45 mínútna vinnusmiðju eða vörukynningu í sérstökum sal í Hörpu, þar sem þeir geta fengið óskipta athygli gesta og kynnt nýjungar á markaði.
Sýningin verður opin ráðstefnugestum á föstudegi og laugardegi.