Að hætta að festast


Að hætta að festast

Um fyrirlestur
17/10/2026 09:00 - 09:45
Ríma

„Aðeins 0,1 af yfirborði jarðar er malbikað. Við þjónum restinni.“

Þessi setning minnir okkur hjá Ísar stöðugt á markmið okkar: að gera akstur og flutninga á landi betri, hraðari, ódýrari og sjálfbærari – milli póla.

Við byggjum á 40 ára íslenskri þekkingu á því hvernig komast má áfram þegar aðstæður eru erfiðar. Hvernig hægt er að skutla börnunum í skólann, bjarga fólki úr snjóþungum fjöllum og aka yfir jökla – allt á sama degi og á einum og sama vegbílnum.

Ísar hefur tekið þessa íslensku sérþekkingu skrefinu lengra og þróað lausnir sem gera fólki annars staðar í heiminum kleift að komast áfram í sandi, leðju, snjó og öðrum krefjandi aðstæðum.

Í þessari stuttu vinnustofu kynnum við hvernig við nálgumst þetta í dag og hvaða tækni liggur að baki einstakri getu Ísar-bílanna, rekstrarhagkvæmni þeirra og sjálfbærni.