Scott Hammond og Sarah Seiler


Scott Hammond og Sarah Seiler

Scott Hammond er landkönnuður, leitarhundastjórnandi og rithöfundur sem býr og starfar í Klettafjöllum Bandaríkjanna. Hann kennir við Utah State University og er aðgerðastjóri hjá björgunarsveit lögreglunnar í Utah-sýslu. Sveitin er aðili að fjallabjörgunarsamtökunum Mountain Rescue Association (MRA) og sinnir yfir 100 útköllum á ári.

Boo, hinn einstaki leitarhundur hans, er af golden retriever-kyni. Þegar Scott er ekki að skrifa, kenna eða bjarga fólki sem hefur villst fer hann í sund, stundar gönguferðir eða segir barnabörnunum sínum sögur.

Hann er höfundur bókarinnar Highly Reliable Teams: When Failure is NOT an Option (Ascendt, 2025) og bókaflokksins The Search and Rescue Dog Series (Black Rose, 2023, 2024, 2025 og 2026), sem ætlaður er ungmennum. Hann er jafnframt einn af ritstjórum tímaritsins Journal of Search and Rescue.
Sarah Seiler, PhD, er sjálfboðaliði í björgunarstarfi í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum og á að baki farsælan feril í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Nýlegar rannsóknir hennar á áfallatengdum streituáverkum (PTSI) í björgunarstarfi hafa verið sagðar marka tímamót.

16 október 2026 14:00 - 14:45
Norðurljós

Samkvæmt nýjum rannsóknum þeirra dr. Sarah Seiler og dr. Scott Hammond geta björgunarsveitir sem verða fyrir áföllum eflt seiglu sína með því að tileinka sér níu einkenni teyma sem búa yfir miklum áreiðanleika. Í vinnustofunni verður sýnt hvernig byggja má upp traust og gagnkvæman stuðning með fyrirbyggjandi aðgerðum, þannig að björgunarsveitir hafi sameiginlegt stuðningsnet þegar þær takast á við áföll. Flestar björgunarsveitir nýta sér með réttu viðrunarfundi og ráðgjöf í kjölfar alvarlegra og streituvaldandi atburða. Þessi vinnustofa sýnir hins vegar hvernig móta má fyrirbyggjandi starfsmenningu sem miðar að því að koma í veg fyrir sálrænan skaða af völdum álags.

Vinnustofan byggist á virkri þátttöku og þátttakendur fá aðgang að matstæki og gagnvirkum myndböndum. Hún er byggð á bók Hammonds, Highly Reliable Teams: When Failure is NOT an Option, sem hefur hlotið mikið lof.