Brock Jenkins


Brock Jenkins

Brock Jenkins er læknanemi og bráðatæknir í sjúkraflugi með sérhæfingu í gjörgæsluflutningum. Hann hefur jafnframt hlotið viðurkenningu á sviði læknisfræði í óbyggðum og við erfiðar aðstæður (Fellow of Extreme and Wilderness Medicine). Hann býr að fjölbreyttri reynslu, allt frá björgunaraðgerðum hátt til fjalla í Klettafjöllum í Colorado til mannúðarverkefna á Haítí, í Palestínu og Úkraínu. Sérsvið hans eru sjúkraflutningar í dreifbýli, klínísk kennsla og ómskoðun á vettvangi utan sjúkrahúsa (POCUS).

Brock leggur áherslu á hagnýta notkun háþróaðrar tækni þar sem aðföng og búnaður eru af skornum skammti, einkum tækni sem skilar mestum ávinningi við mat og meðferð sjúklinga. Markmið hans er að efla heilbrigðisstarfsfólk í björgunarstörfum með verkfæri sem bætir við hefðbundna líkamsskoðun og gerir því kleift að sinna því sem það gerir nú þegar, en enn betur.

18 október 2026 12:30 - 13:15
Norðurljós

Meðferð bráðveikra sjúklinga við erfiðar aðstæður krefst nálgunar sem tekur mið af aðstæðum hverju sinni, sérstaklega þegar sinna þarf sjúklingum um lengri tíma og bjargir eru af skornum skammti. Í þessum fyrirlestri er kynnt einföld og markviss nálgun á ómskoðun á vettvangi (POCUS), sérstaklega sniðin að þessum veruleika.

Í stað óþarfa tæknifítusa er áherslan á þær ómskoðanir sem nýtast best í reynd – skoðun á hjarta, lungum, neðri holæð (IVC) og augum sem styðja við tafarlausar klínískar ákvarðanir um lífsbjargandi meðferð og flutning sjúklinga við erfiðar aðstæður. Þátttakendur fá gagnreynda aðferð til að samþætta ómskoðun við núverandi verklag sitt og bæta þannig hefðbundna líkamsskoðun þegar tímaramminn er ófyrirsjáanlegur og einangrun einkennir aðstæður.