Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Meðferð bráðveikra sjúklinga við erfiðar aðstæður krefst nálgunar sem tekur mið af aðstæðum hverju sinni, sérstaklega þegar sinna þarf sjúklingum um lengri tíma og bjargir eru af skornum skammti. Í þessum fyrirlestri er kynnt einföld og markviss nálgun á ómskoðun á vettvangi (POCUS), sérstaklega sniðin að þessum veruleika.Í stað óþarfa tæknifítusa er áherslan á þær ómskoðanir sem nýtast best í reynd – skoðun á hjarta, lungum, neðri holæð (IVC) og augum sem styðja við tafarlausar klínískar ákvarðanir um lífsbjargandi meðferð og flutning sjúklinga við erfiðar aðstæður. Þátttakendur fá gagnreynda aðferð til að samþætta ómskoðun við núverandi verklag sitt og bæta þannig hefðbundna líkamsskoðun þegar tímaramminn er ófyrirsjáanlegur og einangrun einkennir aðstæður.
Brock Jenkins er læknanemi og bráðatæknir í sjúkraflugi með sérhæfingu í gjörgæsluflutningum. Hann hefur jafnframt hlotið viðurkenningu á sviði læknisfræði í óbyggðum og við erfiðar aðstæður (Fellow of Extreme and Wilderness Medicine). Hann býr að fjölbreyttri reynslu, allt frá björgunaraðgerðum hátt til fjalla í Klettafjöllum í Colorado til mannúðarverkefna á Haítí, í Palestínu og Úkraínu. Sérsvið hans eru sjúkraflutningar í dreifbýli, klínísk kennsla og ómskoðun á vettvangi utan sjúkrahúsa (POCUS).