Þorbjörg Petrea Pálsdóttir


Þorbjörg Petrea Pálsdóttir

Þorbjörg Petrea Pálsdóttir er meðlimur í björgunarsveitinni Ársæli og hefur starfað í björgunarsveitum frá árinu 2008.

Í kjölfar jarðhræringanna í Grindavík starfaði hún sem aðgerðastjórnandi í vettvangsstjórn með það að markmiði að halda samfellu í verkefnum á svæðinu. Þar starfaði hún og öðlaðis reynslu af stjórnun aðgerða, ákvarðanatöku undir álagi og samhæfingu verkefna á vettvangi.

Í dag starfar hún á aðgerðasviði hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg en er áfram með verkefni í Grindavík þar sem hún nýtir reynslu sína og þekkingu í áframhaldandi verkefnum.

Date unspecified
Location unspecified

Þessi fyrirlestur fjallar um þau fjölbreyttu verkefni og áskoranir sem komið hafa upp á Reykjanesskaga í kjölfar jarðhræringa og eldgosa. Farið er yfir atburðarásina í tímaröð, þar sem hvert eldgos er tekið sérstaklega fyrir og skoðað hvaða áhrif það hafði á samfélagið, innviði og viðbragðsaðila. Fjallað er um rýmingar, gasmengun, öryggi ferðamanna, vernd mikilvægra innviða og þau verkefni sem björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar þurftu að takast á við. Fyrirlesturinn er hugsaður fyrir erlendum gestum og veitir skýra innsýn í hvernig íslensk stjórnvöld og viðbragðskerfi hafa brugðist við þessum einstöku náttúruhamförum.