Áralöng aðgerð á Reykjanesi vegna eldgosa


Áralöng aðgerð á Reykjanesi vegna eldgosa

Um fyrirlestur
17/10/2026 09:00 - 09:45
Silfurberg B

Þessi fyrirlestur fjallar um þau fjölbreyttu verkefni og áskoranir sem komið hafa upp á Reykjanesskaga í kjölfar jarðhræringa og eldgosa. Farið er yfir atburðarásina í tímaröð, þar sem hvert eldgos er tekið sérstaklega fyrir og skoðað hvaða áhrif það hafði á samfélagið, innviði og viðbragðsaðila. Fjallað er um rýmingar, gasmengun, öryggi ferðamanna, vernd mikilvægra innviða og þau verkefni sem björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar þurftu að takast á við. Fyrirlesturinn er hugsaður fyrir erlendum gestum og veitir skýra innsýn í hvernig íslensk stjórnvöld og viðbragðskerfi hafa brugðist við þessum einstöku náttúruhamförum.