JC Ferguson


JC Ferguson

JC Ferguson er tveggja dætra faðir og starfar sem yfirmaður hjá Austin-Travis County EMS í Austin í Texas í Bandaríkjunum. Hann hefur umsjón með teymi sem sinnir viðbragði á sérstökum viðburðum og í neyðartilvikum og gegndi áður starfi þjálfunarstjóra í tíu ár. JC hóf störf við almannaöryggi árið 2003 og hefur síðan gegnt fjölbreyttum störfum innan slökkviliðs, sjúkraflutninga og neyðarsamskipta. Hann er einnig háttsettur félagi í heiðursverði deildarinnar, leiðandi þátttakandi í jafningjastuðningsteymi hennar og annar formanna vinnuhóps NENA um jafningjastuðning, sem starfar undir velferðarnefnd samtakanna. Í frítíma sínum hefur JC mikinn áhuga á Ultimate Frisbee og má gjarnan finna hann utandyra, annaðhvort á hlaupum eða á einu af fjölmörgum útivistarsvæðum Austin-borgar.

16 október 2026 13:00 - 13:45
Silfurberg B

Líkamar okkar og hugur eru hönnuð fyrir að vinna undir álagi, en við stöðugt og uppsafnað áreiti, hefur það þau áhrif á þig að þú kemur heim úrvinda? Langar þig að geta höndlað erfiða tíma og aðstæður án þess að verða úrvinda? Langar þig að geta fengist við alvarleg bráðatilvik? Hér lærir þú að verða óbrjótanleg(ur), að nota það sem við verðum vitni að til að verða betri. Þú munt einnig læra leiðir til að byggja upp, viðhalda og bæta við seiglu. Á fyrirlestrinum munt þú fá hvatningu til að taka í notkun verkfæri sem leiða þig að því besta í þér, bæði í vinnu sem einkalífi.