Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Líkamar okkar og hugur eru hönnuð fyrir að vinna undir álagi, en við stöðugt og uppsafnað áreiti, hefur það þau áhrif á þig að þú kemur heim úrvinda? Langar þig að geta höndlað erfiða tíma og aðstæður án þess að verða úrvinda? Langar þig að geta fengist við alvarleg bráðatilvik? Hér lærir þú að verða óbrjótanleg(ur), að nota það sem við verðum vitni að til að verða betri. Þú munt einnig læra leiðir til að byggja upp, viðhalda og bæta við seiglu. Á fyrirlestrinum munt þú fá hvatningu til að taka í notkun verkfæri sem leiða þig að því besta í þér, bæði í vinnu sem einkalífi.
JC Ferguson er tveggja dætra faðir og starfar sem yfirmaður hjá Austin-Travis County EMS í Austin í Texas í Bandaríkjunum. Hann hefur umsjón með teymi sem sinnir viðbragði á sérstökum viðburðum og í neyðartilvikum og gegndi áður starfi þjálfunarstjóra í tíu ár. JC hóf störf við almannaöryggi árið 2003 og hefur síðan gegnt fjölbreyttum störfum innan slökkviliðs, sjúkraflutninga og neyðarsamskipta.