Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Kristján starfar m.a. sem leiðbeinandi í snjóflóðum hjá Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar auk þess sem hann skrifar kennsluefni. Hann situr einnig í fagráði snjóflóða og ferðast mikið um fjöll að vetri til. Kristján er meðlimur í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri og starfar þar sem undanfari. Áhuginn á viðfangsefninu kviknaði þegar Kristján sjálfur grófst í snjóflóði.Kristján er með BA-gráðu í sálfræði ásamt því að hafa klárað kennsluréttindanám.
Fyrirlesturinn fjallar hvernig sál-, fél- og hugfræðilegir þættir hafa áhrif á ákvarðanatöku og þar af leiðandi hegðun í kritískum snjóflóðaaðstæðum.
Fjallað verður um áhættusækni, hugsanavillur, hæfni okkar til að draga ályktanir, viðhorf, skynjun, samskipti, hvernig athafnir eru afleiðingar af ákvörðunum og fleira. Þá verða einnig kynntar nokkrar leiðir til að minnka áhrif mannlega þáttarins í ferðamennsku að vetri til. Fyrirlestrinum er þó fyrst og fremst ætlað að fá fólk til þess að þekkja hugsanavillur sem við gerum, beita gagnrýninni hugsun þegar ferðast er á hugsanlegu hættusvæði og vera meðvitað um eigin hugsanir.
Fyrirlesturinn ætti að vera gagnlegur öllum þeim sem stunda ferðamennsku að vetri til en einnig viðbragðsaðilum sem vinna á vettvangi í fjalllendi og svæðisstjórnum.