Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Sarah H. Seiler, PhD, MSN, MBA, RN, er sjálfboðaliði í leitar- og björgunarstarfi og slökkviliðsmaður með meira en 30 ára reynslu af störfum í krefjandi umhverfi þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi og áreiðanleika. Starfsreynsla hennar spannar leit og björgun í óbyggðum og fjalllendi, bráða- og gjörgæsluhjúkrun, viðbrögð við hamförum, líffæragjafir og nær tveggja áratuga reynslu af stjórnun og forystu innan skipulagsheilda. Í doktorsrannsókn sinni árið 2025 rannsakaði Sarah sálfræðilegt öryggi og upplifun sjálfboðaliða af því að tilheyra björgunarsveitum sem starfa í óbyggðum víðs vegar um Bandaríkin. Rannsóknin beindist meðal annars að því hvernig forysta, lærdómur innan teyma, traust og menning hafa áhrif á reynslu og upplifun sjálfboðaliða í leitar- og björgunarstarfi. Í störfum sínum leggur Sarah áherslu á að nýta niðurstöður rannsókna sinna og eigin reynslu til að þróa hagnýtar aðferðir sem efla seiglu björgunarsveita, samskipti, lærdóm og samheldni, áður en þær standa frammi fyrir sínum erfiðustu verkefnum. Sarah starfar nú sem sjálfboðaliði hjá Saluda Fire & Rescue í fjallahéruðum Norður-Karólínu og hjá Spartanburg County Search and Rescue. Hún er jafnframt stofnandi ráðgjafarfyrirtækisins Perspective Transformation Consulting LLC, þar sem hún vinnur með stjórnendum og teymum að því að byggja upp sterkari og seigari skipulagsheildir sem starfa við krefjandi aðstæður þar sem mikið er í húfi.