Guðni Páll Viktorsson


Guðni Páll Viktorsson

Sjókayak hefur verið mín ástríða síðustu 15 ár. Á þeim tíma hef ég aflað mér fjölbreyttra réttinda á sviði leiðsagnar og kennslu í kayakróðri. Ég hef róið umhverfis Ísland og Írland og leitt fjölda leiðangra víða um heim.

Í dag rek ég eigið fyrirtæki og starfa meðal annars sem þjálfari og prófdómari í kayakleiðsögn á alþjóðlegum vettvangi. Með reynslu minni af kennslu, leiðsögn og ferðum á sjó er mér sérstaklega annt um öryggismál og mikilvægi þess að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum áður en lagt er af stað.