Vilborg Arna Gissurardóttir


Vilborg Arna Gissurardóttir

Vilborg Arna Gissurardóttir hefur áralanga reynslu af leiðöngrum um háfjöll og pólarsvæði. Hún hefur meðal annars leitt leiðangra í Himalajafjöllum og yfir Grænlandsjökul, skíðað einsömul á Suðurpólinn og starfað á Suðurskautslandinu sem búðarstjóri og við öryggismál. Vilborg er með M.Sc.-gráðu í hamfarastjórnun og MBA-gráðu og hefur undanfarin ár starfað við ráðgjöf á sviði áhættustýringar, öryggismála og stjórnkerfa. Hún hefur jafnframt sérstaklega beint sjónum að samspili ævintýraferðamennsku og hlýnunar jarðar og þeim áskorunum sem breytingar á náttúrulegu umhverfi skapa fyrir öryggi og rekstur.

17 október 2026 15:00 - 15:45
Kaldalón

Samfélagsmiðlar hafa á skömmum tíma breytt því hvernig við upplifum, veljum og deilum ævintýrum. Staðir sem áður voru aðeins þekktir meðal reyndra fjallamanna geta orðið að eftirsóttum áfangastöðum á örskömmum tíma og afrek sem áður kröfðust áralangrar reynslu verða að „bucket list“ markmiðum. Í fyrirlestrinum verður fjallað um áhrif samfélagsmiðla og áhrifavalda á þróun ævintýraferðamennsku og fjallamennsku.Hvar liggja mörkin á milli þess að samfélagsmiðlar hvetji fólk til útivistar og ævintýra og þess að þeir skapi óraunhæfa mynd af aðstæðum, getu og áhættu?