Piia Kallas & Hendrik Tali


Piia Kallas & Hendrik Tali

Piia Kallas er stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Päästeliit, eistnesku björgunarsamtakanna. Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu, bæði úr rekstri opinberra fyrirtækja og úr viðbragðsstarfi sjálfboðaliða. Hún sat meðal annars í stjórn eistneska ríkisfasteignafélagsins Riigi Kinnisvara AS í 13 ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Tartu.

Frá því að Piia hóf störf hjá Päästeliit hefur hún verið ötull talsmaður björgunarsamtaka sjálfboðaliða og gegnt lykilhlutverki í umfangsmiklum stuðningi Eistlands við úkraínskt björgunarfólk. Árið 2025 var hún útnefnd borgari ársins í Eistlandi fyrir framlag sitt til björgunarstarfs sjálfboðaliða, eflingar borgarasamfélagsins og aðstoðar við Úkraínu.

Hendrik Tali er samskiptastjóri hjá Päästeliit, eistnesku björgunarsamtökunum, og sjálfboðaliði í björgunarsveit Kaberneeme. Starf hans snýr einkum að upplýsingamiðlun, þróun björgunarstarfs sjálfboðaliða, alþjóðlegu samstarfi og eflingu viðbúnaðar samfélaga.

Hann hefur haft umsjón með alþjóðlegum þjálfunar- og skiptiverkefnum milli björgunarsamtaka í Eistlandi og á Íslandi og hefur starfsreynslu bæði á sviði björgunarstarfa og varnarmála. Hendrik stundaði nám við Háskólann í Tallinn og stundar nú meistaranám í stjórnun samfélagsbreytinga (Leading Change in Society) við Háskólann í Tartu.

18 október 2026 11:30 - 12:15
Norðurljós

Frá því að Rússland hóf allsherjarinnrás sína í Úkraínu hafa eistnesku björgunarsamtökin afhent úkraínsku björgunarfólki búnað og sérhæfðar lausnir að verðmæti tæplega sjö milljóna evra. Þar á meðal eru björgunarbílar og hlífðarbúnaður, vélmenni og annar búnaður til jarðsprengjuhreinsunar, færanlegar einingar til að veita sálræna skyndihjálp og neyðarskýli. Samstarfið er þó orðið mun meira en afhending hjálpargagna.

Með heimsóknum á vettvang, stuðningi sem tekur mið af þörfum og sameiginlegri þjálfun hafa eistneskir sjálfboðaliðar öðlast ómetanlega innsýn í björgunarstarf í langvarandi stríði. Áfram þarf að sinna hefðbundnum neyðarverkefnum og tryggja að hægt sé að flytja mannafla og búnað til eftir þörfum og laga nýtingu þeirra að breyttum aðstæðum. Öryggi og andleg líðan björgunarfólks verða jafn mikilvæg og tæknileg geta.