Ragna Sif Árnadóttir og Hákon Árnason


Ragna Sif Árnadóttir og Hákon Árnason

Ragna og Hákon eru systkini sem hafa um árabil starfað með Hjálparsveit skáta í Kópavogi.  Bæði starfa þau innan rústaflokks Sveitarinnar, þar sem Hákon gegnir einnig stöðu formanns flokksins. Hákon er menntaður vélfræðingur, starfaði lengi sem slökkviliðs og sjúkraflutningamaður áður en hann flutti sig um set og vinnur núna fyrir Veitur á Flúðum.  Ragna er heimilislæknir, vann áður á Bráðamóttöku Landspítala en starfar nú á heilsugæslu. Hún gegnir stöðu formanns sjúkraflokks innan HSSK. 

Systkinin starfa nú saman sem sviðsstjórar Hamfarasviðs Landsbjargar, þar sem þau sameina reynslu sína af björgunarstörfum og heilbrigðisþjónustu. 

18 október 2026 12:30 - 13:15
Silfurberg B

Nýverið var Hamfarasvið stofnað innan Björgunarskóla SL og tekur það við af fyrra Rústabjörgunarsviði. Með þessari breytingu er ætlunin að styrkja enn frekar kennslu og þjálfun félagsfólks á sviði fjölbreyttra hamfara, svo sem gróðurelda, ofanflóða og eldgosa, samhliða verkefnum tengdum rústabjörgun og jarðskjálftum.

Við munum fara yfir verkefni sviðsins, áskoranir, ný námskeið/fyrirlestra, samstarf við önnur svið, hvað framundan er í námsefnisgerð og hvernig námsefni/kennsla verður uppsett fyrir félaga.

Í framhaldi af því munum við ræða stuttlega niðurstöður og næstu skref úr vinnustofu um Framtíðarsýn Hamfarahópa sem haldin verður á fimmtudeginum fyrir Björgun.