Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Jón Svanberg Hjartarson er framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar (112). Hann hefur starfað að neyðarviðbragði og almannavörnum um langt árabil, meðal annars sem framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sérfræðingur hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sem lögreglumaður á Vestfjörðum. Jón hefur jafnframt tekið þátt í björgunarsveitarstarfi frá unga aldri og víðtæk reynsla hans spannar því ólík hlutverk innan neyðarviðbragðsins, bæði í daglegu starfi, samstarfi viðbragðsaðila sem og við stjórnun og þátttöku í björgunar- og almannavarnaaðgerðum.
Neyðarviðbragðið byggist á samvinnu og gagnkvæmu trausti. Fólk með ólíkan bakgrunn, reynslu og hlutverk þarf að geta deilt verkefnum og ábyrgð, leitað aðstoðar og miðlað þekkingu – óháð persónulegum skoðunum, stöðu eða því hver telur sig vita best. Í erindinu verður fjallað um hvort yfirleitt sé hægt að treysta öðrum fyrir verkefnum – og hvort ráðlegt sé að gefa þeim raunverulegt svigrúm til að leysa þau. Hvar liggja mörkin milli stuðnings og afskipta, eftirfylgni og örstjórnunar? Getum við miðlað reynslu og þekkingu án þess að verða aftursætisbílstjórinn sem getur ekki sleppt stýrinu? Formaðurinn sem getur ekki hætt því hann „finnur engan“ til að taka við – eða stjórnandinn sem getur ekki deilt verkefnum vegna þess að enginn kann eða getur gert þau eins og hann sjálfur? Þetta verður skoðað í samhengi við mannlegu hlið neyðarviðbragðsins – frá daglegum samskiptum, samstarfi og stjórnun yfir í ískaldar aðgerðir þar sem tími er naumur, svigrúm til mistaka lítið og mannslíf geta verið í húfi.