Sveinn Gauti og Róbert Snær


Sveinn Gauti og Róbert Snær

Róbert er tölvunarfræðingur og félagi í Hjálparsveit Skáta í Garðabæ og starfar sem forritari. Hann hefur sérhæft sig í drónamálum og þróun hugbúnaðarlausna fyrir hagnýtingu dróna í leit og björgun.

Sveinn Gauti er umhverfisverkfræðingur og félagi í Hjálparsveit Skáta í Garðabæ. Hann starfar hjá Veðurvaktinni og Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur sérhæft sig í drónamálum og þróun hugbúnaðarlausna fyrir hagnýtingu dróna í leit og björgun.

18 október 2026 11:30 - 12:15
Silfurberg B

Hjá Hjálparsveit skáta í Garðabæ höfum við undanfarin tvö ár unnið að þróun tóla til að nota þegar leitað er að fólki með drónum. 

Sem hluta af þessari þróun þá höfum við prófað ýmsar leitaraðferðir og metið árangurinn af hverri og einni. Umfjöllunarefni fyrirlestursins yrði annars vegar að sýna hvaða ferla við höfun þróað í drónaleit og hvernig okkar leið að þeim týnda virkar.

Hins vegar væri fjallað um tilraunir sem við höfum gert á mismunandi leitaraðferðum úr drónum sem við höfum gert. Þar höfum við prófað leit í streymi og leit í myndum með mismunandi hætti og skráð árangurinn niður.

Þar sem leit með drónum er frekar ný af nálinni þá hafa ekki verið þróaðir samræmdir ferlar fyrir þess konar leit. Það eru allir svolítið að gera sitt eigið. Við teljum að okkar rannsóknir komi til með að nýtast við að búa til góða ferla fyrir drónaleit og fyrirlestur á Björgun gæti verið góð leið til að koma þeim gögnum á framfæri