Magnús Stefán Sigurðsson


Magnús Stefán Sigurðsson
Magnús Stefán Sigurðsson er félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og hefur sérhæft sig í straumvatns- og fjallabjörgun. Magnús Stefán hefur starfað í björgunarsveit í 20 ár og hefur verið leiðbeinandi í straumvatnsbjörgun síðan 2014. Í frístundum stundar hann ljósmyndun af miklum móð.
17 október 2026 15:00 - 15:45
Silfurberg B

Stuðlagil er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar rennur Jökla frá Kárahnjúkavirkjun gegnum íðilfagurt gil úr stuðlabergi sem er einstakt á heimsvísu. Gilið er djúpt og bakkarnir hálir og hafa nýlega orðið slys þar sem ferðamenn hafa dottið í ánna og drukknað. Björgunaraðgerðir í gilinu eru af ýmsum ástæðum krefjandi og fer Magnús yfir nýjustu björgunaraðgerðina í gilinu með sérstaka áherslu á samstarf viðbragðsaðila. Einnig mun hann rifja upp eldri björgunaraðgerðir í straumvatni fjalla um þann lærdóm sem af þeim má draga.