Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Við erum meðlimir í Björgunarsveitinni Sæbjörg á Flateyri. Við vorum formaður og varaformaður þegar snjóflóðin féllu 14. janúar 2020. Þessa nótt féllu tvö stór flóð sem fóru bæði yfir varnargarðana. Annað fór í höfnina og tók bátana en hitt lenti á húsi þar sem unglingsstúlka grófst undir.
Nóttin sem varnirnar brugðust okkur en björguðu samt mannslífum. Við förum yfir þessa nótt og dagana á eftir, frá fyrstu útköllum til björgunaraðgerða og hvernig þetta hafði áhrif á okkur og samfélagið.
Það sem gerir fyrirlesturinn áhugaverðan er að þrátt fyrir að varnirnar brugðust að hluta til þá björguðu þær líka mörgum mannslífum. Við ætlum að fara yfir hvað við lærðum og hvernig þetta breytti því hvernig við hugsum um öryggi og viðbúnað.