Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Flotaforingi Ásgrímur L. Ásgrímsson Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og staðgengill forstjóra Landhelgisgæsla Íslands Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og staðgengill forstjóra Landhelgisgæslu Íslands frá árinu 2025. Hernaðarfulltrúi Íslands hjá SHAPE, herstjórn NATO í Evrópu, og staðgengill hernaðarfulltrúa Íslands við höfuðstöðvar NATO á árunum 2023–2025. Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og staðgengill forstjóra Landhelgisgæslu Íslands á árunum 2011–2023. Ýmis störf innan Landhelgisgæslu Íslands sem stjórnandi, sjómælingamaður og stýrimaður/vakthafandi yfirmaður á brú á árunum 1989–2011. Stýrimaður/vakthafandi yfirmaður á brú hjá bandarísku strandgæslunni, USCG, á árunum 1987–1988. Útskrifaðist árið 1989 sem sjómælingamaður frá Hydrographic Surveying and Charting School hjá US Naval Oceanographic Office. Útskrifaðist árið 1987 frá bandarísku strandgæsluakademíunni, USCG Academy, með B.Sc.-gráðu í stjórnun og réttindi sem stýrimaður. Félagi í björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá árinu 1981.
Starfsumhverfi íslenskra leitar- og björgunaraðila hefur tekið hröðum breytingum á undanförnum áratugum. Hafsvæðið við og umhverfis Ísland hefur orðið sífellt alþjóðlegra og flóknara, sem kallar á að viðbragðsaðilar aðlagi sig að breyttum aðstæðum.