María Gústavsdóttir


María Gústavsdóttir

Ég er hjúkrunarfræðingur og starfa á bráðamóttöku Landspítalans, en ásamt því hef ég sinnt sjálfboðaliðastörfum með björgunarsveitum Landsbjargar í um áratug og er að leggja lokahönd á mastersnám í hamfarastjórnun við Kaupmannahafnarháskóla. Í lokaverkefninu mínu skoða ég mismunandi nálganir til þess að efla viðbragðsgetu í dreifbýli á norðurslóðum.

Date unspecified
Location unspecified

Aukinn áhugi alþjóðasamfélagsins á norðurslóðum og vilji íbúa til þess að verða sjálfstæðari í viðbragði hefur sett pressu á yfirvöld að efla viðbragðsgetu og stytta biðtíma eftir neyðaraðstoð í dreifbýli. Lokaverkefnið mitt “Localizing Emergency Response in Greenland: A Scoping Review of Arctic Approaches” veitir yfirsýn yfir það hvernig fyrsta viðbragði er hagað utan þéttbýlis á Íslandi, Færeyjum, Svalbarða, Nunavut og Alaska með það í huga að styrkja viðbragð á Grænlandi. Fyrirlesturinn mun fjalla um helstu niðurstöður og umhugsunarefni þegar kemur að því að brúa viðbragðsgetu bilið á Norðurslóðum.