Júlíus Ó Einarsson


Júlíus Ó Einarsson

Júlíus er þjóðfræðingur og starfaði lengi sem lögreglumaður auk þess að hafa reynslu af störfum í björgunarsveit. Hann er höfundur og útgefandi bókarinnar Í framlínu - lögreglumenn segja frá, sem kom út nýlega. Júlíus er jafnframt einn þriggja höfunda bókarinnar Til taks, sem kom út árið 2024 og segir sögu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.

Date unspecified
Location unspecified

Kynning á bókinni Í FRAMLÍNU - lögreglumenn segja frá, sem kom út í febrúar 2026. Þar lýsa tugir lögreglumanna reynslu sinni og upplifunum af krefjandi starfi. Tilgangurinn er sá að gefa almennum lesanda víðtæka innsýn í reynsluheim lögreglu og áhrif starfsins á líf þeirra sjálfra og aðstandenda.

Rædd er hugmynd um að kynna aðrar starfsstéttir og samtök sjálfboðaliða með sama hætti. Bók af þessu tagi gefur líklega dýpri innsýn en önnur miðlun. Er til þess fallin að auka skilning á lífi og aðstæðum þess fólks sem tekur að sér að vera í framlínu gagnvart hvers kyns vá og áföllum í samfélaginu.