Teitur Magnússon


Teitur Magnússon

Ég er félagi í Björgunarfélagi Ísafjarðar, hef starfað í félaginu í 19 ár og verið virkur í sjóbjörgun s,l 14 ár og starfað sem skipstjóri og vélstjóri á björgunarskipum frá Ísafirði.    

Date unspecified
Location unspecified

Fyrirlesturinn fjallar um björgunaraðgerð á Ísafirði í október 2025 þar sem bíll fór í sjó með ungum ökumanni innanborðs. Ökumaðurinn var í köldum sjó í um 30 mínútur.
Farið verður yfir viðbrögð fyrstu aðila á vettvangi, samhæfingu björgunaraðila, leitaraðgerðina, áskoranir í aðgerðinni og þau atriði sem skiptu sköpum í aðgerðinni og hvernig ótrúlegar tilviljanir unnu með okkur.