Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Ég heiti Vigdís Kristín og er doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík. Ég rannsaka geðheilsu þjálfaðra sjálfboðaliða sem bregðast við náttúruhamförum. Rannsóknin sem ég vinn að beinist að kvíða, þunglyndi, áfallastreituröskun og kulnun meðal sjálfboðaliða í Landsbjörg í kjölfar eldgossins við Grindavík. Rannsóknarteymið mitt safnaði gögnum á þremur tímapunktum: fyrir gosið, nokkrum mánuðum síðar og um það bil einu ári síðar, til að skoða hvernig staðsetning, tilfinningaleg tengsl og aðrir þættir tengjast sálrænum afleiðingum. Við tókum einnig viðtöl við viðeigandi hópa viðbragðsaðila til að öðlast betri skilning á reynslu þeirra. Markmiðið er að skrá og skilja reynslu fyrstu viðbragðsaðila til að styðja við velferð þeirra og bæta viðbúnað fyrir atburði í framtíðinni.
Viðbrögð við hamförum reyna á seiglu og velferð sjálfboðaliða. Að skilja reynslu þeirra er lykillinn að því að styðja við þau og viðhalda öflugu viðbragðskerfi. Í þessum fyrirlestri eru kynntar niðurstöður úr doktorsrannsókn á sjálfboðaliðum í íslenskum leitar- og björgunarsveitum, þar á meðal reynsla þeirra í tengslum við eldgosin við Grindavík árið 2023. Með því að fylgja sjálfboðaliðum eftir yfir tíma og sameina spurningakannanir, viðtöl og fyrirliggjandi rannsóknir er skoðað hvernig persónulegir, félagslegir og skipulagslegir þættir hafa áhrif á streitu, bjargráð og bata. Fyrirlesturinn varpar ljósi á hvað hefur áhrif á geðheilsu sjálfboðaliða og hvaða þættir skipta mestu máli við undirbúning og stuðning við sjálfboðaliða í hamförum framtíðarinnar.