Peter Hwan Lajgaard


Peter Hwan Lajgaard

Peter er kapteinn hjá DEMA – dönsku almannavönunum– með yfir 30 ára reynslu af slökkvi- og björgunarstarfi, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Sérfræðingur í köfunum, björgunarköfunar kennari og skipaður prófdómari fyrir dönsku atvinnukafarapróf (SCUBA). Hefur sérhæft sig í leitar- og björgunaraðgerðum á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum, meðal annars á Grænlandi og í Færeyjum, auk WET USAR-aðgerða. Varaforseti sjálfboðaliðasamtakanna REDNINGSDYKKER.dk, sem eru landsvettvangur fyrir hagsmunagæslu og þróun kafana í almannaþágu í Danmörku. Hefur víðtæka reynslu af leitar- og björgunaraðgerðum á og í vatni þar sem notast er við sónartækni og kafara. Stýrði teymi í hreinsunar- og umhverfis aðgerðum eftir flóðbylgju í norðvesturhluta Grænlands árið 2017.

Date unspecified
Location unspecified

Peter Hwan Lajgaard fjallar um hvernig norræn samvinna í leitar- og björgunarmálum þarf að aðlagast ört breytilegu umhverfi á norðurslóðum. Með Grænland sem lykilsvæði er varpað ljósi á miklar vegalengdir, erfið veðurskilyrði, takmarkaða innviði og aukna umferð vegna loftslagsbreytinga. Fjallað er um sameiginleg aðföng (bjargir), samhæfingu yfir landamæri og samstarf borgaralegra og hernaðaraðila, með áherslu á aukna samhæfni, betri aðstæðuvitund og sameiginlegan viðbúnað norrænna samstarfsaðila.