Hrafnhildur Hannesdóttir


Hrafnhildur Hannesdóttir

Hrafnhildur er jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands, varaformaður Jöklarannsóknafélags Íslands, félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og veit fátt betra en að vera upp á jökli.

Date unspecified
Location unspecified

Fyrirlesturinn fjallar um uppfærslu á sprungukortum fyrir stærri jökla landsins sem eru grundvallargögn fyrir jöklafara. Farið er yfir gagnaöflun, notkun fjarkönnunargagna og hvernig tilkynningar ferðafólks um opnar sprungur á ferðaleiðum eða ný sprungusvæði gagnast við kortagerðina. Vetrarsnjór hefur verið undir meðallagi síðastliðna tvo vetur og mikil jöklaleysing var sumarið 2025 sem hefur leitt til þess að sprungusvæði hafa verið greinilegri en áður. Sprungukortin eru teiknuð eftir haustmyndum þegar sumarleysingu er að mestu lokið. Nýju sprungukortin eru í opnu aðgengi og niðurhalanlega á kortsjá Náttúrufræðistofnunar. Rætt verður um þær áskoranir sem fylgja síbreytilegu umhverfi jökla og mikilvægi þess að miðla upplýsingum samræmt til ferðafólks.