Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Gunnar starfar sem slökkviliðsmaður, bráðatæknir og kafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Samhliða því gegnir hann stöðu yfirleiðbeinanda á fjallabjörgunarsviði Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Hann hóf sinn björgunarsveitarferil með Hjálparsveit Skáta á Akranesi árið 1995 og hefur verið viðloðandi björgunarstarf á Akranesi, Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu síðan þá. Síðustu 14 ár hefur hann kennt fjallabjörgun, fjallamennsku, fyrstu hjálp í óbyggðum og björgun úr snjóflóðum fyrir Björgunarskóla Slysavarnarfélagsinns Landsbjargar. Gunnar hefur komið að stofnun tveggja undanfarahópa utan höfuðborgarsvæðisinns, á Akranesi og á Akureyri. Og einnig hefur hann tekið að sér þjálfunarverkefni fyrir landflokk slökkviliðs höfuðborgarsvæðisinns.
Fyrirlesturinn fjallar um grunnnámskeiðið í fjallabjörgun. Á hverju ári stendur Fjallabjörgunarsvið Björgunarskólans fyrir nokkrum grunnnámskeiðum í faginu. Markmið okkar er að þekkingunni sé dreift um landið og að sveitir í öllum héruðum hafi einhverja getu til að framkvæma björgun úr fjalllendi á öruggan máta. Fjallabjörgun er sérhæfing sem krefst mikillar vinnu. Flóknar björgunaraðgerðir í fjallendi krefjast mikils mannskapar, búnaðar og oft þurfa björgunarsveitir að reiða sig á stuðningi annara sveita. Hvernig verður þessi sérhæfing til? Við hverju mega þátttakendur búast er þeir mæta á þetta námskeið og hvaða dyr opnar það fyrir þau? Hversu mikilvægt er að þekkingunni sé dreift um landið og er þörf á frekari sérhæfingu.