Opnunarhátíð Björgunar


Opnunarhátíð Björgunar

Um fyrirlestur
16/10/2026 11:00 - 12:00
Silfurberg A and B

Björgun 2026 verður formlega sett í Hörpu föstudaginn 16. október kl. 11:00. Við opnunarhátíðina flytja ávörp fulltrúar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og stjórnvalda, auk þess sem Leonid Tymchenko flytur opnunarfyrirlestur ráðstefnunnar um starfsemi neyðarþjónustu 112 í Úkraínu á stríðstímum.

Að dagskrá lokinni verður gestum boðið að þiggja léttan hádegisverð á Hörputorgi.

Dagskrá

11:00 – Opnunarhátíð

  • Tónlistaratriði

  • Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, flytur ávarp

  • Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Slysavarnafélagsins Landsbjargar, ávarpar gesti og setur ráðstefnuna

  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, flytur ávarp

  • Leonid Tymchenko, fyrrverandi aðstoðarráðherra innanríkismála Úkraínu, flytur opnunarfyrirlesturinn „Neyðarþjónusta 112 í Úkraínu á stríðstímum“

  • Léttur hádegisverður á Hörputorgi