Teipingar fyrir göngufólk-Hné og ökkli - 2


Teipingar fyrir göngufólk-Hné og ökkli - 2

Um fyrirlestur
18/10/2026 11:30 - 13:15
Ríma

Á þessari vinnustofu fá þátttakendur hagnýta kynningu á teipun fyrir algeng vandamál sem geta komið upp hjá göngufólki. Sérstök áhersla verður lögð á hné og ökkla, þar sem farið verður yfir hvernig teip getur stutt við liðamót, aukið öryggi í göngu og dregið úr óþægindum tengdum álagi og minniháttar meiðslum.

Farið verður yfir helstu grunnatriði í notkun teips, mismunandi aðferðir fyrir hné og ökkla. Þátttakendur fá svo tækifæri til að æfa framkvæmdina í verklegum hluta námskeiðsins. Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja vera betur undirbúnir fyrir gönguferðir eða þeim sem starfa með gönguhópum.

Markmið námskeiðsins

  • Kynna grunnatriði teipunar, helstu tegundir teips og notkun þeirra.
  • Fara yfir helstu teipunaraðferðir fyrir hné og ökkla með áherslu á göngur og útivist.
  • Auka skilning á því hvenær og hvernig teip getur nýst við göngur og útivist.
  • Efla sjálfstraust þátttakenda í að beita teipi við algeng álagseinkenni og minniháttar meiðsli.

Þátttakendur þurfa að vera skráðir á ráðstefnuna Björgun til að taka þátt á þessari vinnustofu