Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Á heimleið frá slysi í ófærð á Suðurlandi lenti bíll sjúkraflutningamanna og læknis í árekstri við annan bíl. Allir þrír viðbragðsaðilarnir slösuðust og Friðrik Jónas alvarlega. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar slapp ómeiddur. Friðrik Jónas fjallar um fyrstu viðbrögð á vettvangi, flækjustig þess að björgunamenn og þar af stór hluti viðbragðsins á svæðinu hafi slasast og afleiðingar slyssins fyrir hann persónulega.
Friðrik Jónas Friðriksson er formaður svæðisstjórnar björgunarsveita á Suðausturlandi. Hann starfar sem rafvirki á Höfn í Hornafirði og einnig sem sjúkraflutningamaður í hlutastarfi.