Björgunin á Franklin-ánni – teymisvinna, traust og þjálfun í villtri náttúru Tasmaníu


Björgunin á Franklin-ánni – teymisvinna, traust og þjálfun í villtri náttúru Tasmaníu

Um fyrirlestur
17/10/2026 11:00 - 11:45
Silfurberg A

Árið 2024 festist reyndur litháískur flúðasiglingamaður í einni af afskekktustu ám jarðar. Í um  tuttugu klukkustundir reyndi stór hópur björgunarmanna að losa hann úr flúðum Franklin-árinnar án árangurs og að lokum stóð aðeins einn kostur eftir til að bjarga lífi hans, hættuleg aflimun á neðri útlim í vatninu. Þetta er saga þeirrar björgunar, með áherslu á teymisvinnu, traust og þjálfun, aðlögunarhæfni og ákvarðanatöku.