Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Íslensk náttúra er einstaklega viðkvæm og getur verið mjög hættuleg, sérstaklega þeim sem þekkja lítið til. Fjölmörg dæmi eru um skemmdir á náttúrunni vegna átroðnings ferðamanna auk alvarlegra slysa á ferðamönnum.
Í fyrirlestrinum er fjallað um áskoranir sem landeigendur lenda í þegar einkaland breytist skyndilega í alþjóðlegan ferðamannastað. Tekið er dæmi af Brúará þar sem stjórnlaus og hröð ásókn ferðamanna – drifin áfram af samfélagsmiðlum – leiddi á skömmum tíma til náttúruspjalla, ágangs á einkaland og alvarlegra slysa, þar á meðal dauðaslysa.
Fyrirlesari, Gestur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði og ráðgjafi hjá R+ atferlismiðaðri stjórnun, lýsir þessari þróun frá sjónarhóli sinnar fjölskyldu sem stendur í innviðauppbyggingu á svæðinu. Sjónum er meðal annars beint að upplifun landeigenda; að takast á við gífurlegan straum ferðamanna með takmörkuð verkfæri til að stýra þeim, þar sem hegðun gesta mótast frekar af stafrænum áhrifavöldum en opinberum merkingum og leiðbeiningum.
Farið verður yfir þær öryggisaðgerðir sem ráðist hefur verið í á svæðinu og mikilvægi samstarfs við lykilaðila á borð við SafeTravel og björgunarsveitir. Að lokum verður rýnt í það, út frá sjónarhorni sálfræði og atferlisfræði, hvers vegna hefðbundnar aðferðir sýna oft takmarkaðan árangur þegar kemur að því að stýra hegðun ferðamanna með öryggi og náttúruvernd að leiðarljósi.
Gestur Gunnarsson er sérfræðingur í klínískri sálfræði og annar stofnenda og eigenda ráðgjafafyrirtækisins R+ atferlismiðuð stjórnun.