Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Vaskir fjallagarpar frá Akureyri og Reykjavík héldu strax af stað í átt að slysstað sem var í rúmlega 1800 m hæð Bárðarbungu á Vatnajökli. Bandarískir hermenn gera til tilraunir til að bjarga fólkinu af jöklinum en þær mistakast. Þjóðin lagði allt sitt traust á íslensku björgunarmennina. Þann 20 september leggja níu björgunarmenn á jökulinn, sumir gengu 70 - 80 km á jöklinum nánast hvíldarlaust, eftir að hafa ekið yfir lítt kannaða öræfaleið, yfir hættuleg vatnsföll og úfin hraun.Þeim tekst að bjarga samtals 10 mönnum úr lífshættu ofan af jöklinum þrátt fyrir að fjölmargt hafi farið úrskeiðis frá hendi yfirskipulagsstjórnar. Segja má að gæfan hafi fylgt björgunarmönnunum.
Ég er víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, leiðsögumaður og mikill náttúruunnandi
Faðir minn Jón Sigurgeirsson ( 1909-2000) var í björgunarleiðangrinum sem bjargaði áhöfn Geysis sem fórst á Vatnajökli árið 1950. Ég hef mikinn áhuga á að koma frásögn föður míns, um þetta einstaka björgunarafrek, á framfæri og hef til þess dagbækur og greinar hans.