Eagle Eyes - Dróna hugbúnaðurinn fyrir leit og björgun


Eagle Eyes - Dróna hugbúnaðurinn fyrir leit og björgun

Um fyrirlestur
16/10/2026 17:00 - 17:45
Rima

EagleEyes hjálpar leitar- og björgunarteymum og öðrum viðbragðsaðilum að nýta dróna á skilvirkari hátt í neyðaraðgerðum. Kerfið beitir tölvusjón í rauntíma á bæði lifandi streymi sem og upptökum frá dróna, til að hjálpa stjórnendum að greina smávægilegar vísbendingar sem annars gætu farið fram hjá þeim.

EagleEyes einfaldar einnig dróna aðgerðir með því að tengja drónann beint við kortakerfi teymisins. Það er samhæft CalTopo og sýnir þar staðsetningu dróna í rauntíma, auk þess að gera stjórnendum kleift að setja inn myndpunkta í hárri upplausn, með nákvæmri staðsetningu beint inn á sameiginlegt kort á meðan dróninn er enn á flugi. Þannig geta teymi á vettvangi strax nýtt sér yfirsýnina í sínum aðgerðum. Kerfið styður einnig beint streymi þannig að aðilar í fjarlægð geta fylgst með lifandi myndstraumi drónans hvar sem er með nettengingu. Í flugstjórnarviðmóti getur EagleEyes birt kortaupplýsingar úr CalTopo samkvæmt stillingum flugmanns, sem gerir honum kleift að fljúga með hliðsjón af skilgreindum leitarsvæðum og sjá staðsetningu teyma í rauntíma.

EagleEyes Pilot bætir einnig yfirsýn yfir lofthelgi með því að gera flugmönnum og stjórnendum aðgerða kleift að sjá staðsetningu allra virkra dróna á svæðinu, sem bætir samhæfingu og dregur úr hættu á árekstrum í lofti. Auk notkunar í dróna aðgerðum má beita sömu tölvusjón tækni bæði í rauntíma og eftirvinnslu á loftmyndum sem teknar eru úr þyrlum, flugvélum eða öðrum loftförum.

Í kynningunni verður farið yfir hagnýtt verklag við notkun EagleEyes í raunverulegum leitar- og björgunaraðgerðum, útskýrt hvernig kerfið virkar og dregin upp mynd af framtíðarþróun þess eftir því sem möguleikar þess halda áfram að aukast.