Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Mikill fjöldi fólks leggur leið sína á Esjuna á hverju ári. Langflestir ganga upp að Steini eða á Þverfellshorn. Gjarnan er viðkvæðið að viðkomandi hafi þá "bara" farið á Esjuna og þykir þá jafnvel ekki mikið afrek. Esjan er hins vegar stórt og fjölbreytt fjallendi, þar er að finna mikið af auðveldum og aðgengilegum leiðum en einnig erfiðustu ísklifurleiðir landsins og alvarlegar fjallaskíðaleiðir. farið er yfir nokkur alvarleg slys og björgunaraðgerðir á Esjunni síðastliðin 50 ár og hvaða lærdom megi megi mögulega draga af þeim.
Jón Haukur hefur starfað með Hjálparsveit skáta í Kópavogi síðan 1987 lengst af í verkefnum tengdum fjallabjörgun. Hann hefur einnig séð um þróun og viðhald útvistarsvæðisins í Esjuhlíðum. Fyrirlesturinn fjallar um slys og aðgerðir á Esjunni síðastliðin 50 ár og hvaða reynslu má mögulega draga af þeim.