Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Í fyrirlestrinum mun ég skoða hvernig vel útfærð keppni getur orðið ein að bestu og fljótvirkustu leiðum til að bæta frammistöðu í leit og björgun. Byggt á reynslu okkar sem tvöfaldra sigurveigara í SAR Games, keppni yfir heila helgi sem samanstendur af mismunandi leitar og björgunar verkefnum, rötun, teymisvinnu og raunverulegum fyrstu hjálpar verkefnum, mun fyrirlesturinn sýna að vinaleg keppni býr til öruggt andrúmsloft til æfinga, frammistöðumats og tilfærslu þekkingar milli liða.
Við tengjum þá reynslu við bók Scott C Hammonds, Afar áreiðanleg teymi, og umfjöllun um hvað áreiðanleg teymi gera öðruvísi þegar uppgjöf er ekki í boði og færum það yfir í hagnýtar venjur sem teymi taka með sér að lokinni helginni. Með mér verður Sverre Rakkens frá Rauða krossinum í Svelvik, hugmyndasmiður SAR Games.
Eoin er sjálfboðaliði hjá Exmoor Search & Rescue þar sem hann gegnir störfum stjórnarformanns, björgunarmanns og þjálfunarstjóra.