Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Starfsemi búðahóps snýst um að byggja upp reynslu og þekkingu á uppsetningu og rekstri tjaldbúða. Verkefni hópsins er að aðstoða í stærri aðgerðum s.s. að koma upp aðstöðu fyrir aðgerðastjórnendur, aðstöðu fyrir björgunar- og leitarhópa eða álíka verkefni.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR) hefur lengst af átt stór tjöld og ýmiskonar búnað sem þeim hefur fylgt en sveitin var stofnuð 1932 og er því 90 ár. Áður var búnaðurinn ekki mikið notaður og umsjón og ástand var ekki alltaf á hreinu. Á vormánuðum 2009 hóf HSSR að starfa með Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni (ÍA) og var sérstakur hópur stofnaður fyrir það verkefni, búðahópur. Með aðild að ÍA var farið í að bæta og skipuleggja búnað HSSR til að uppfylla kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra björgunarsveita. Þó uppbygging búðahóps hafi verið tilkomin vegna aðildar að ÍA þá hefur áherslan alltaf verið lögð á að sinna verkefnum innanlands en reynslan af starfi í ÍA hefur nýst hópnum vel í þeim verkefnum.
Í fyrirlestrinum verður farið yfir sögu hópsins, skipulagið, búnaðinn, tekin dæmi hvað hefur reynst okkur vel og hvað ekki, verkefnin o.fl.