Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
Laura McGladrey er hjúkrunarfræðingur með tvenns konar sérhæfingu og hefur starfað við bæði bráðahjúkrun og geðhjúkrun. Hún starfar nú á miðstöðinni Stress Trauma Adversity Research and Treatment (START) og sinnir stuðningi við aðila sem hafa orðið fyrir áfalli úr hópi lögreglufólks, slökkviliðs- og björgunarfólks og viðbragðsaðila við erfiðar aðstæður eða í óbyggðum. Hún er með bakgrunn úr mannúðaraðstoð og neyðarhjálp í óbyggðum, kennir námskeið fyrir viðbragðsaðila í óbyggðum og heldur fyrirlestra um allt land um streitu vegna vinnuálags og áfallahjálp. Hún leiðbeinir meðlimum fjallabjörgunarsveitar Portland og Eldora-skíðagæslunnar um streitu og þrautseigju auk þess að vera ráðgjafi fyrir björgunar- og eftirlitssveitir um alla Norður-Ameríku. Hún er stofnandi og framkvæmdastjóri Responder Alliance.
Í þessum fyrirlestri verður farið yfir nýjar upplýsingar um björgunartilvik auk verkfæra sem notuð eru af björgunarsveitum í Bandaríkjunum til að skipuleggja, greina og lágmarka áhrif áfalla og vinnuálags á björgunarfólk og björgunarhópa. Á meðal verkfæranna eru sálræn skyndihjálp, streitustigi fyrir björgunarfólk og leiðbeiningar um áfallahjálp.