Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Go to navigation .
18. janúar 2020 fór bifreið með þremur unglingspiltum í höfnina í Hafnarfirði. Þessi fyrirlestur fjallar um þá atburðarrás og hversu mikilvægt gott samstarf milli viðbragðsaðila og sérhæfðar sjúkrahúsmeðferðar getur verið. Tveir af þessum drengjum þurftu stöðuga endurlífgun þar til að hægt var að koma þeim á hjarta-og lungnavél. Allir þrír lifðu af þó að tveir væru fastir í bílnum í sjónum í tæpar 30 mínútur.
Útskrifaður frá Háskóla Íslands úr læknadeild 1982. Sérnám í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg frá 1986.